Aðalfundur Lífs 2012

Aðalfundur  Lífs, styrktarfélags, verður haldinn í Hringsal Barna- og kvennadeildar Landspítalans

(í tengibyggingu, gengið inn á Barnaspítala)

Miðvikudaginn 29.febrúar kl: 20:00

Dagskrá fundarins:

1.    Setning fundar
2.    Skipun fundarstjóra og fundarritara
3.    Skýrsla stjórnar
4.    Framlagning ársreiknings fyrir árið 2011
5.    Tillaga að félagsgjöldum fyrir árið 2012
6.    Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir árið 2012
7.    Skýrsla Úthlutunarnefndar
8.    Tillögur að breytingum á samþykktum félagsins
9.    Kosning stjórnarmanna í stað þeirra sem ganga úr stjórn
10.    Kosning varamanna í stjórn
11.    Önnur mál

Félagar eru hvattir til að mæta sem og aðrir velunnarar félagsins

Skráð í Fréttir | Leave a comment

Líf gefur þrívíddarómhaus

Fósturgreiningardeild Landspítalans hefur yfir fimm óskoðunarækjum að ráða. Öll eru þau búin ómhausum til að skoða með tvívíddartækni þ.e. hin hefðbundna ómskoðun. Tvö tækjanna hafa einnig búnað til að skoða í þrívídd en það gefur mynd sem líkist meira venjulegri ljósmynd. Fósturgreining er að mestu leyti framkvæmd með tvívíddarómun en í völdum tilfellum gefur þrívíddarómun enn frekari upplýsingar um ástand og líðan fósturs.
Þann 21.des. síðasliðinn gaf Líf, styrktarfélag kvennadeildar, Fósturgreiningardeild einn þrívíddar ómhaus til viðbótar hinum tveimur. Andvirði gjafarinnar er um 1.500.000 kr.

Skráð í Fréttir, Uncategorized | Leave a comment

Viðskiptavinir Sjóvá gefa til Lífs!

Viðskiptavinum í Stofni hjá Sjóvá, gefst nú kostur á að styðja við Líf styrktarfélag með því að gefa hluta eða alla Stofnendurgreiðsluna sem Sjóvá sendir viðskiptavinum sínum um þessar mundir. Um 20 þúsund tjónlausir og skilvísir viðskiptavinir í Stofni fá endurgreiddan hluta iðgjalda síðasta árs núna í byrjun febrúar.  Þetta er þriðja árið sem Sjóvá gefur viðskiptavinum sínum kost á að styrkja gott málefni og varð Líf fyrir valinu þetta árið.
Sigurjón Andrésson markaðsstjóri Sjóvá: „Þetta hefur gefist vel síðustu tvö ár og margir viðskiptavinir okkar hafa notað tækifærið og ánafnað hluta Stofnendurgreiðslunnar til góðs málefnis. Líf hefur vakið óskipta athygli okkar með sínu frábæra starfi og vel heppnaðri landssöfnun í fyrra.“
Stjórn Lífs og aðrir velunnarar þakka Sjóvá hlýhug í verki og vonar að sem flestir sjái sér fært að styðja við fjölskyldurnar í landinu með því að gefa Líf.

Skráð í Fréttir | Leave a comment

Hugheilar nýárskveðjur

Nú fer senn að líða að áramótum og að baki mjög viðburðarríkt ár fyrir Líf. Við náðum að byggja grunn undir félagið með velheppnaðri landssöfnun og í samstarfi við yfirstjórn spítalans að klára Sængurkvennaganginn.

Líf óskar landsmönnum farsældar á komandi ári með hugheilum þökkum fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða.

Skráð í Fréttir | Leave a comment

Styrktarnúmer fyrir Líf

Símanúmerið 908 1515 hefur nú verið stofnað fyrir hönd Lífs. Það renna 1500 kr óskipt til félagsins í hvert sinn sem hringt er í það.

Skráð í Fréttir | Leave a comment

Soroptimistaklúbbur Seltjarnarness afhendir Líf veglegan styrk

Líf styrktarfélag tók í dag á móti fimm fræknum fulltrúum frá Soroptimistaklúbbi Seltjarnarness. Klúbburinn hélt opið golfmót til styrktar Líf 25. ágúst sl. Leiknar voru 9 holur og í mótslok voru veitingar og verðlaunaafhending. Klúbburinn náði að safna kr. 350.000 tul styrktar Líf.

Soroptimistar eru framsækin og sveigjanleg alþjóðasamtök fyrir nútímakonur í stjórnun og öðrum sérhæfðum störfum. Soroptimistar stuðla að heimsmynd þar sem konur og stúlkur ná í sameiningu fram því besta sem völ er á, bæði sem einstaklingar og sem hópur, og þar sem þær geta látið drauma sína rætast og til jafns við aðra skapað sterk og friðsöm samfélög um allan heim.

Soroptimistar hvetja til aðgerða og skapa tækifæri til að breyta lífi kvenna og stúlkna með fjölþjóðlegu samstarfi og alþjóðlegu félaganeti. Soroptimistar hvetja til jafnræðis og jafnréttis; skapa öruggt og heilsusamlegt umhverfi; auka aðgengi að menntun; efla leiðtogahæfni og hagnýta þekkingu til sjálfbærrar framtíðar.

Líf sendir öllum systrum Soroptimistaklúbbs Seltjarnarness innilegt þakklæti fyrir frábært framtak í þágu Líf.

Skráð í Fréttir | Leave a comment

Glæsilegt bingókvöld á Rúbín

Líf þakkar fyrir frábært bingókvöld 2. nóvember sl. á Rúbín í Öskjuhlíð. Mæting fór fram úr björtustu vonum en dásamlegt starfsfólk Rúbín bjargaði málunum og fengu allir á endanum sæti.

Vinningarnir voru ekki af verri endanum m.a. frá Icelandair, World Class, Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Tapas barnum, Andrea boutique, Hótel Heklu, Nordica spa, Mecca spa, Babysam, Grillmarkaðnum, Volcano design, Birnu, Núrgis design o.fl. Margir löbbuðu  brosandi út með poka fulla af fíneríi.

Ágóðinn rennur óskipt til Líf.



Hafdís og Þórunn með bingóstjóranum Helgu Brögu

Skráð í Fréttir | Leave a comment

Svava Kristín afhendir Líf gjöf

Þann 18. september sl. hélt Svava Kristín Ingólfsdóttir söngkona minningartónleika til minningar um dótturdóttur sína Karenu Mist Kristinsdóttur sem lést skyndilega 23. desember sl. 7 vikna gömul og til minningar um börn er látist hafa úr vöggudauða, veikindum eða í slysum.

Á tónleikunum komu fram m.a. einsöngvararnir Anna Sigga, Gréta Hergils, Edda Austmann, Hanna Björk, Björg Birgisdóttir, Svava Kristín og fleiri góðir, Kór Bústaðakirkju, Jónas Þórir á píanó og Jón Þorsteinn sem vakið hefur mikla athygli sem harmonikkuleikari og aðrir hljóðfæraleikarar.

Svava Kristín og dóttir hennar Jóhanna afhentu Ingrid og Hildi úr stjórn Lífs í dag kr. 200.000 í minningu Karenar Mist.

Líf færir þeim hugheilar þakkir fyrir þetta frábæra framlag.

Skráð í Fréttir | Leave a comment

Fjáröflunarnefnd Lífs auglýsir eftir kraftmiklum einstaklingum

Hlutverk fjáröflunarefndar er að skipuleggja og halda utan um alla fjáröflun félagsins. Líf er ungt félag, mikið starf er fyrir höndum og því leitar fjáröflunarnefndin að frjóu fólki sem er tilbúið til að leggja sitt af mörkum til þess að ný miðstöð fæðinga og kvenlækninga geti orðið að veruleika. Á næstunni er m.a. á döfinni að halda bingó til styktar Líf, en hugsunin er að það verði árlegur viðburður á vegum félagsins.

Landsöfnunin sem Líf stóð fyrir í mars síðastliðnum gaf félaginu góða byrjun. Nú þegar eru hafnar framkvæmdir við endurbætur á sængurkvennagangi sem fjármagnaðar eru með féi úr söfnuninni. Verkefnin á Kvennadeildinni eru ótal mörg og því skiptir miklu máli að fjáröflun félagsins sé tekin föstum tökum.

Við hvetjum því alla sem hafa áhuga á að starfa með félaginu og láta gott af sér leiða að hafa samband við Kristrúnu Bernhöft formann nefndarinnar á kristrun04@ru.is

Skráð í Fréttir | Leave a comment

Fræðslunefnd Líf auglýsir eftir áhugasömum einstaklingum

Hlutverk fræðslunefndarinnar er að halda utan um fræðslu á vegum Líf. Fræðslunefnd skipuleggur fyrirlestra, ráðstefnur og málþing og er tilgangurinn sá að miðla fróðleik og bjóða upp á fjölbreytta og áhugaverða fræðslu fyrir félagsmenn og aðra um málefni tengd kvennadeild, kvennalækningum, meðgöngu, fæðingarþjónustu auk annarra viðfangsefna.

Á síðasta ári hélt fræðslunefndin utan um afar vel heppnaða fyrirlestraröð um ýmis mál sem snerta fyrst og fremst konur en ekki síður fjölskyldur og líf þeirra og er áhugi á að gera þetta að árlegum viðburði. Nú er þörf á því að fá fleiri áhugasama einstaklinga í fræðslunefndina og með þessu bréfi vill Líf biðja þig, lesandi góður, um að íhuga hvort þú átt erindi í nefndina.

Ef þú hefur áhuga á að starfa með Líf að þessum áhugaverðu verkefnum – sendu póst á lif@gefdulif.is

Skráð í Fréttir | Leave a comment